Vormót ÍR er haldið í júní ár hvert og var fyrst haldið árið 1943. Keppt er í karla og kvennaflokki á mótinu.
Vormót ÍR og Kaldalshlaupið árið 2013 fer fram á Laugardalsvelli miðvikudaginn 12. júní og hefst kl. 18:00. Mótið er það 71. í röð Vormóta ÍR og er þriðja mótið í mótaröð FRí sumarið 2013.
1. Skráningar:
Skráning keppenda fer fram í mótaforriti FRÍ
Keppendur eru beðnir að skrá sig fyrir miðnætti sunnudaginn 9. júní og tilgreina besta tíma í spretthlaupum vegna röðunar í riðla og á brautir.
2. Keppnisstaður og tímaseðill:
Keppni fer fram á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 12. júní og hefst kl. 18:00.
Endanlegur tímaseðill verður birtur í mótaforriti FRÍ mánudaginn 10. júní.
3. Keppnisgreinar:
Karlar: 100m, 200m, 800m, 3000m (Kaldalshlaupið), 400m grindahlaup, stangarstökk, kúluvarp, kringlukast, spjótkast og sleggjukast.
Piltar 18-19 ára: Kúluvarp 6 kg.
Piltar 16-17 ára: Kúluvarp og sleggjukast 5 kg.
Konur: 100m, 200m, 400m, 800m, 1500m, 100m grindahlaup, 400m grindahlaup, hástökk, stangarstökk, langstökk, þrístökk og sleggjukast.
Verðlaunagreinar í mótaröð FRÍ:
Konur: 800m, 1500m, þrístökk, hástökk og sleggjukast.
Karlar: 200m, 800m, 3000m (Kaldalshlaupið), kúluvarp og spjótkast.
Sigurvegarar í þessum tíu greinum fá gjafabréf: út að borða fyrir tvo.
4. Skráningargjald og uppgjör:
Skráningargjaldið er 1.300 kr á hverja keppnisgrein og skal greiða fyrir miðnætti mánudaginn 10. júní. Vinsamlega greiðið þátttökugjöld inn á reikning Frjálsíþróttadeildar ÍR 115-26-14004 kt. 421288 2599 og sendið kvittun með tölvupósti á Kristínu Birnu Ólafsdóttur, netfang: olafsdottir.kristin@gmail.com
Félögin eru vinsamlegast beðin um að gera upp í einu lagi fyrir sína keppendur.
5. Nafnakall:
Nafnakall fer fram á keppnisstað 20 mínútum áður en keppni hefst í viðkomandi grein, nema í hlaupagreinum en þá fer nafnakall fram við ráslínu 10 mínútum fyrir hlaup.
6. Stökk og köst:
Allir keppendur fá 3 tilraunir og síðan fá þeir 8 bestu 3 tilraunir til viðbótar. Endurraðað verður í stökk/kaströð áður en þeir 8 bestu halda áfram keppni.
Gert er ráð fyrir að í upphitun fái allir keppendur tvö upphitunarstökk/upphitunarköst.
7. Hlaup:
Tímar í riðlum gilda.
8. Byrjunarhæðir í hástökki og stangarstökki:
Hástökk:
Konur: 1,40m – 1,45m – 1,50m – 1,55m – 1,58m o.s.frv.
Stangarstökk:
Karlar: 3,00m – 3,20m – 3,40m – 3,60m – 3,80m – 3,90m o.s.frv.
9. Verðlaun:
Fyrstu þrír í hverri grein hljóta verðlaun. Stefnt er að verðlaunaafhendingu strax að lokinni keppni í hverri grein og eru keppendur beðnir um að vera til taks.
10. Veitingar:
Keppendum verður boðið upp á grillaðar pylsur og drykk í mótslok. Þjálfurum og gestum mótsins býðst að kaupa pylsur og drykk á kostnaðarverði.
20. Frekari upplýsingar:
Halla Þorvaldsdóttir, netfang: irfrjalsar@gmail.com s 869 9989.
Síðast uppfært 8.maí.2013