hreysti


valitor











































Um ÍR skokk
ÍR-skokkarar æfa saman fjórum sinnum í viku eða oftar. Á mánudögum og miðvikudögum eru æfingar undir stjórn þjálfara kl. 17:30 frá ÍR-heimilinu og eru þeir sem vilja byrja í hópnum hvattir til að mæta þá daga. Á fimmtudögum er opin æfing á sama tíma frá ÍR-heimilinu. Á laugardögum hlaupa ÍR-skokkarar langt, oftast kl. 9:00 frá Breiðholtssundlauginni.  ÍR-skokkarar fara í æfinga- og keppnishlaup innanlands og utan á hverju ári. 

Æfingagjöldin eru 14000,- kr fyrir tímabilið frá október til apríl.  Foreldrar iðkenda í deildinni fá 50% afslátt í skokkhópinn, afslátturinn gildir bæði um börn og fullorðna þannig að eigir þú foreldra sem vilja slást í hópinn fá þeir 50% afslátt.

Stefnt er að því að enginn sé að hlaupa einn, þ.e. iðkendur finna hlaupafélaga sem ætla að vera á svipuðum hraða og helst svipaða vegalengd.  Yfirleitt getur hver og einn stytt sína hlaupaleið eftir að hann er lagður af stað, ef eitthvað kemur uppá eða aðstæður breytast.

ÍR skokk starfrækir póstlista (óska eftir aðild að póstlista [hér]) og er jafnframt á Facebook [hér].

Innan ÍR skokks er starfandi gönguhópurinn Fífurnar.  Haustdagskrá Fífanna er hér.  ÍR skokkarar sem vilja vera á póstlista Fífanna sendi póst á til Áslaugar (aslaug@lbhi.is)

Nýir félagar velkomnir !!



Þjálfarar

Örnólfur Oddsson

 






Stjórn ÍR-Skokk

Björg Árnadóttir
824-7022
 
Sigurður Þórarinsson
899-3499
 
Sif Jónsdóttir
864-9789
 
Guðbjörg Magnúsdóttir
699-8155
 
Svanhildur Þengilsdóttir
863-0434