Lesa frétt
13.9.2010
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar ÍR
Hin árlega uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Íþróttafélags Reykjavíkur verður haldin laugardaginn 18. september n.k. í ÍR-heimilinu. Hátíðin hefst kl 11:30 og þangað eru iðkendur, foreldrar/forráðamenn og aðrir fjölskyldumeðlimir velkomnir. Þar verða veittar viðurkenningar fyrir ástundun í yngstu flokkunum, auk þess sem leikmenn ársins og þeir sem hafa tekið mestum framförum eru verðlaunaðir í eldri flokkunum þ.e. 3. 4. og 5. flokki karla og kvenna. Nýjir þjálfarar verða kynntir sem og þeir þjálfarar kvaddir sem láta af störfum.
Barna og unglingaráð mun sjá um grill og annað í lok hátíðar og á meðan er öllum velkomið að leika sér í knattþrautum á gerfigrasinu líkt og síðustu ár. Kl 14:00 mun meistaraflokkur ÍR spila sinn síðasta leik í sumar á móti Þrótti Reykjavík á Valbjarnarvellinum í Laugardal. Þangað viljum við hvetja alla ÍR-inga til að fara og styðja við bakið á strákunum.
Svo um kvöldið verður uppskera hjá eldri iðkendum ÍR þ.e. m.fl. og 2.fl. karla og kvenna. Húsið opnar kl. 19:00 en borðhald hefst kl. 20:00. Halldór Þ Halldórsson mun sjá um matinn en eins og undanfarin ár mun engin verða svikin af steikum hans. Miðaverði er stillt í hóf eins og áður eða 2500 kr. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu ÍR eða í síma 587-7080. Einnig verður hægt að kaupa miða hjá Braga í Leiksport.
Við hvetjum ykkur ÍR-ingar til að fjölmenna og gleðjast með okkar fólki.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat. Ut wisi enim ad minim veniam, quis nostrud exerci tation ullamcorper suscipit lobortis nisl ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis autem vel eum iriure dolor in hendrerit in vulputate velit esse molestie consequat, vel illum dolore eu feugiat nulla facilisis at vero eros et accumsan et iusto odio dignissim qui blandit praesent luptatum zzril delenit augue duis dolore te feugait nulla facilisi. Nam liber tempor cum soluta nobis eleifend option congue nihil imperdiet doming id quod mazim placerat facer possim assum. Typi non habent claritatem insitam; est usus legentis in iis qui facit eorum claritatem. Investigationes demonstraverunt lectores legere me lius quod ii legunt saepius. Claritas est etiam processus dynamicus, qui sequitur mutationem consuetudium lectorum. Mirum est notare quam littera gothica, quam nunc putamus parum claram, anteposuerit litterarum formas humanitatis per seacula quarta decima et quinta decima. Eodem modo typi, qui nunc nobis videntur parum clari, fiant sollemnes in futurum.