Lesa frétt
27.10.2010

Skiptimarkaður ÍR 29.október

Föstudaginn 29.október kl.16:00-18:30 verður skiptimarkaður í gangi uppi á 2.hæð ÍR heimilis.

Þangað geta allir ÍR –ingar komið með allt sem tilheyrir íþróttaiðkun innan ÍR og komið því í verð og fundið sér annað á hagstæðu verði. Þetta geta verið keppnisbúningar, æfingasett, skíði og allur sá búnaður sem þeirri iðkun fylgir, dansdress, skór, sokkar, júdó og TKD gallar og hvað eina. Endilega kíkið inn í skápa, geymslur og bílskúra og komið með þetta og þið hin komið og skoðið úrvalið. Ath. að hver og einn verðsetur sína vöru og sér sjálfur um viðskiptin. Engir posar eru á staðnum og því þarf fólk að hafa reiðufé á sér.

Nýtum endilega þetta tækifæri, þessa ágætu leið til að halda kostnaði við íþróttaiðkun í lágmarki.

Heitt á könnunni.