hreysti

valitor











n1_logo_grunni
























Stórmót ÍR
          

Stórmót ÍR er haldið í janúar ár hvert. Mótið var fyrst haldið árið 1997 á 90 ára afmæli ÍR. Stórmótið var boðsmót fyrstu árin en það breyttist árið 2000. Mótið er fyrir alla aldurshópa og hefur verið keppt í öllum helstu barna og unglingaflokkum auk keppni í fullorðinsflokki.

Tímasetningar

Mótið verður haldið helgina 25.-26. janúar 2014 og hefst 9:00 að morgni laugardags og lýkur um 16:00 á sunnudegi.
Skipulag keppnisdaga er eftirfarandi með fyrirvara um smávægilegar breytingar:

Laugardagur - 25. janúar

10 ára og yngri - Fjölþraut barna
Keppni hefst kl. 9:00 og lýkur með verðlaunaafhendingu kl. 11:00

11 ára
Keppni hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 11:30

12 ára
Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 15:00

13 ára
Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 16:30

14 ára
Keppni hefst kl. 12:00 og lýkur kl. 15:30

15 ára
Keppni hefst kl. 11:40 og lýkur kl. 18:00

16-17 ára
Keppni hefst kl. 14:00 og lýkur kl. 18:30

18 ára og eldri
Keppni hefst kl. 12:40 og lýkur kl. 18:30

Sunnudagur - 26. janúar

13 ára

Keppni hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 13:00

14 ára
Keppni hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 15:00

15 ára
Keppni hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 15:30

16-17 ára
Keppni hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 15:30

18 ára og eldri
Keppni hefst kl. 11:20 og lýkur kl. 16:00

 

Keppnisgreinar

  10 ára og yngri
11 ára
12 ára
13 ára
14 ára
15 ára
16-17 ára
18 ára og eldri
Fjölþraut barna 
x
 
 
 
 
60m

x
x
x
x
x
x
x
60m grind

 

x
x
x
x
x
200m

 
x
x
x
x
x
400m

 
 
x
x
x
600m

x
x
x




800m



 
x
 x x
x
1500m






x
x
3000m






x
x
Langstökk

x
x
x
x
x
x
x
Þrístökk





x
x
x
Hástökk

x
x
x
x
x
x
x
Stangarstökk



x
x
x
x
x
Kúluvarp

x
x
x
x
x
x
x
Boðhlaup








 

Tímaseðill

Drög að tímaseðli fyrir 11 ára og eldri . Fyrir 10 ára og yngri er fjölþraut sem stendur frá kl. 9 til 11.
Endanlegur tímaseðill verður birtur hér á síðunn ekki síðar en kl. 22.00 24. janúar.

Skráning

Skráning fer fram í gegnum Mótaforrit FRÍ eigi síðar en mánudagskvöldið 20. janúar.
Félög sem eru með fleiri en 12 í hvorum aldurshóp fyrir sig í fjölþraut barna og vilja hafa áhrif á liðsskipanina geta sent inn liðsskipan á netfangið margret1301 [at] gmail.com en þó ekki síðar en mánudagskvöldið 20. janúar.

Þátttökugjöld

Þátttökugjald er 2500 krónur fyrir keppendur sem keppa í flokkum 15 ára og yngri.
Þóttökugjald fyrir keppendur sem keppa í flokkum 16 ára og eldri er 1500 krónur og innifalilð í því er keppni í einni grein. Fyrir hverja grein sem bætist við er greitt 500 króna skránignargjald.

Þátttökugjald tvöfaldast ef skráð er eftir að skráningarfrestur er liðinn, kl. 23:59 mánudagskvöldið 20. janúar. Seinar skráningar skal senda með tölvupósti á netfangið  margret1301 [at] gmail.com

Þátttökugjöld greiðast eftir skráningum eins og þær liggja fyrir kl. 22.00 fimmtudaginn 23. janúar. Fram að þeim tíma er hægt að skrá keppanda úr grein með því að senda tölvupóst á margret1301 [at] gmail.com

Þátttökugjöld greiðast áður en keppni hefst inn á reikning Frjálsíþróttadeildar ÍR: 0115 - 26 - 14004 kt. 421288-2599 eða á staðnum áður en keppni hefst. Kvittun sendist á helgaje [at] internet.is
Óskað er eftir því að hvert félag geri upp í einni heild fyrir keppendur sína.

 

Verðlaun

Veitt verða þátttökuverðlaun fyrri keppendur í fjölþraut og verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti í hverri grein í hverjum flokki.

Keppnisaðstaða

Keppnin fer fram við frábærar aðstæður í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Í höllinni er góð aðstaða fyirr allar algengustu innahússkeppnisgreinar frjálsra íþrótta.
Höllin stendur við Engjaveg 8 og er gengið inn um inngang F sem er á vesturhliðinni.

  • Hringbraut: 4 brautir með stillanlegum halla, fullur halli er 13°
  • Átta 60m brautir
  • Tvær keppnisgryfjur fyrir lang- og þrístökk og ein þreföld upphitunargryfja
  • Gólfefni: SportFlex Super X 13mm frá MONDO
  • Búningsaðstaða: 4 búningsklefar
  • Sæti fyrir u.þ.b. 300 áhorfendur
  • Lýsing
    • Keppnislýsing: um 1100 lux
    • Sjónvarpslýsing um 1300 lux
  • Flatarmál salar: 5000 fm.

Veitingasala

Veitingasala er báða dagana og þar eru seldar veitingar á sanngjörnu verði.

Tengiliðir

Nánari upplýsingar um mótið veita:
Margrét Héðinsdóttir, S: 821-2172

Síðast uppfært:  18.5.2013